Hverfisgata 94-96 er miðsvæðis, en þó fjarri helstu skemmtistöðum borgarinnar, staðsett á efri hluta Hverfisgötu og liggur að Barónsstíg að hluta.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Hverfisgötu á undanförnum árum og hefur götumyndin breyst umtalsvert. Fjöldi íbúða, verslana og veitingastaða er nú í byggingu á svæðinu sem skapa mun fjölbreytt og skemmtilegt hverfi. Stutt er í almenningssamgöngur og ganga tillögur að fyrirhugaðri borgarlínu út á að hún fari meðal annars um Hverfisgötu. Stækkun Landspítalans er fyrirhuguð í næsta nágreni og því helsta heilbrigðisþjónustu landsins í göngufæri.